Íslands þúsund ár
Við göngum í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Íslands. Við gerum það sem frjáls og fullvalda þjóð sem í 82 ára lýðveldissögu sinni hefur sýnt að sjálfstæði okkar er ekki sjálfgefið náttúrulögmál. Það er tilkomið vegna áralangrar baráttu kynslóða sem þekktu hvernig það var þegar ákvarðanir um íslensk málefni voru teknar af öðrum en Íslendingum, á öðrum stað en á Íslandi.
Í meira en þúsund ár hafa Íslendingar varðveitt tunguna, menninguna og meðvitundina um að við Íslendingar eigum saman land og eigum sameiginleg örlög. Á þeim grunni höfum við á síðustu áratugum byggt upp eitt farsælasta samfélag heims á alla helstu mælikvarða.
Sá árangur náðist ekki með því að loka sig frá umheiminum. Þvert á móti. Við höfum sótt sjóinn, átt viðskipti við aðrar þjóðir og tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi og gert það sem sjálfstæð þjóð og á okkar eigin forsendum.
Það er sá málstaður sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir í dag.
Ég ber virðingu fyrir þeim sem hyggjast segja já. Við eigum öll sömu óskina um gott og öruggt líf á Íslandi. En ég hafna þeirri hugmynd að nei sé afstaða óttans, að við óttumst upplýsingar eða treystum ekki þjóð okkar. Ég treysti þjóðinni. Einmitt þess vegna tel ég að hún eigi rétt á að vita hvaða umboð hún er beðin ð veita ríkisstjórninni.
Já er að hefja formlegt aðildarferli
Atkvæðið í dag snýst ekki um að kíkja í pakkann eða að fá upplýsingar á borðið. Já felur í sér umboð til að hefja að nýju aðildarviðræður á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Slíkar viðræður snúast fyrst og fremst um hvernig umsóknarríki tekur upp og aðlagar sig að gildandi regluverki. Þetta liggur fyrir. Það sem ekki liggur fyrir er hvaða niðurstaða í viðræðunum er óviðunandi fyrir ríkisstjórnina. Því hefur hún ekki svarað.
Þetta sést skýrt í sjávarútvegsmálum. Okkur er sagt að tryggt verði að þjóðin eigi auðlindina og njóti ávinningsins. Það er mikilvægt, en svarar ekki kjarnaspurningunni um það hver hafi ákvörðunarvaldið um stjórn veiðanna.
Í dag er lokaákvörðunin okkar. Innan Evrópusambandsins fellur verndun sjávarauðlindarinnar undir sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Engin skýr yfirlýsing hefur fengist um að varanlegt íslenskt lokaákvörðunarvald sé ófrávíkjanlegt skilyrði ríkisstjórnarinnar. Það er of veigamikið atriði til að afgreiða með almennum fyrirheitum um góðan samning.
Sama gildir um loforðin um lægri vexti, lægra verð og meiri stöðugleika. Þetta eru verkefni sem brenna á íslenskum heimilum núna. En já í dag lækkar ekki næstu afborgun, afnemur ekki verðtryggingu og nær ekki niður vöxtum og verðbólgu. Þetta eru allt okkar verkefni og við verðum að vinna heimavinnuna sjálf. Enginn vinnur hana fyrir okkur.
Sjálfstætt Ísland í breyttri heimsmynd
Heimurinn hefur tekið breytingum og við þurfum að horfast í augu við það. En svar Íslands er ekki að draga sig inn í skel. Það er heldur ekki að gera ESB-aðild að svari við öllum ógnum. Öryggi Íslands byggist á NATO, varnarsamstarfinu við Bandaríkin, norrænu samstarfi og traustum tengslum við Evrópu. Viðskiptahagsmunir okkar byggjast á EES, fríverslunarsamningum og dugnaði íslensks atvinnulífs.
Fullveldið er ekki rykfallið hugtak heldur stjórntæki sem við notum til að gera góða samninga, verja auðlindirnar, skapa verðmæti og ákveða sjálf hvaða leið hentar Íslandi.
Íslendingar hafa aldrei þurft að velja milli þess að vera stolt, sjálfstæð þjóð og virkur þátttakandi í samfélagi þjóðanna. Við getum verið hvort tveggja og höfum sannarlega verið það. Samstarf við Evrópu þarf ekki að leiða til aðildar að Evrópusambandinu.
Íslands þúsund ára saga kennir okkur að sjálfstæðið varðveitist ekki af sjálfu sér. Lýðveldið okkar er ungt en það er arfleifð sem hver kynslóð þarf að taka ábyrgð á, nota af skynsemi og skila áfram til þeirrar næstu.
Með þá ábyrgð að leiðarljósi segi ég nei í dag.