Guðrún Hafsteinsdóttir

Greinar

2026

xd.is

Billegur Bláskógaskattur

Ríkisstjórnin verður að falla frá fyrirhuguðum „Bláskógaskatti“ og hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Á fundi með ferðaþjónustunni á Selfossi í síðustu viku komu fram þungar áhyggjur af þessum áformum, en þar töluðu atvinnurekendur og sveitarstjórnarfólk sem þekkja af eigin raun hvernig fyrirtækin, störfin og þjónustan í byggðunum tengjast. Ríkisstjórnin þarf að hlusta á það fólk. Ferðaþjónustan… Lesa meira

xd.is

Ríkið á að fara á undan

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var kosin út á loforð sín um að ná tökum á efnahagsmálunum, verðbólgunni og vöxtunum. Það er svo að þegar upp er staðið kjósa margir, ef ekki flestir, með veskinu. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar átti að vera að ná stöðugleika í efnahagslífinu og lækkun vaxta með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Sagt var… Lesa meira

xd.is

Íslenskir hagsmunir í Washington

Ísland hefur ástæðu til að bera höfuðið hátt í samskiptum við aðrar þjóðir. Við búum yfir verðmætum auðlindum, öflugu atvinnulífi og þekkingu sem eftir er sóst. Landið okkar gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki í öryggi Norður-Atlantshafsins. Verkefni okkar er að nýta þessa stöðu af skynsemi, rækta vináttu við bandamenn okkar og sækja fram fyrir hönd íslenskra… Lesa meira

xd.is

Guðrún Hafsteinsdóttir: Við viljum ríki sem þjónar fólkinu

Ræða Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, við stefnuræðu forsætisráðherra 9. september 2026. Kæru landsmenn. „Við vitum að aukið frelsi leysir bundin öfl úr læðingi og eykur þjóðinni þrótt og velsæld.“ Þetta sagði Ólafur Thors á Alþingi fyrir rúmum sjötíu árum. Þessi orð eiga enn við. Trúin á frelsi einstaklingsins og framtak fólksins er enn kjarninn í… Lesa meira

xd.is

Heimavinnan bíður

Íslenska þjóðin hefur svarað og hafnað því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörsókn var gríðarlega góð, sú mesta í þjóðaratkvæðagreiðslu í lýðveldissögunni, og niðurstaðan skýr. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að Íslendingum sé betur borgið sem sjálfstæðri þjóð utan Evrópusambandsins, í nánu samstarfi við Evrópu í gegnum EES-samninginn og með sterk tengsl… Lesa meira

xd.is

Íslands þúsund ár

Við göngum í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Íslands. Við gerum það sem frjáls og fullvalda þjóð sem í 82 ára lýðveldissögu sinni hefur sýnt að sjálfstæði okkar er ekki sjálfgefið náttúrulögmál. Það er tilkomið vegna áralangrar baráttu kynslóða sem þekktu hvernig það var þegar ákvarðanir um íslensk málefni voru teknar af öðrum en Íslendingum,… Lesa meira

xd.is

Hvers virði er fullveldið?

Forsætisráðherra hefur sagt að ef þjóðin samþykki að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju ætli hún að „selja landið fokdýrt“. Ég hef hugsað mikið um þessi ummæli, því þau leiða að spurningunni: Hvers virði er fullveldi Íslands? Hvaða verðmiða setjum við á það að eiga sjálf lokaákvörðunarvaldið yfir auðlindunum okkar? Hvað þarf að koma í… Lesa meira

Vísir

Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi

Ég hef varið stærstum hluta starfsævi minnar í íslensku atvinnulífi. Þar lærði ég að stærstu ákvarðanirnar eru sjaldnast teknar í hita augnabliksins. Þær eru teknar þegar fólk gefur sér tíma til að horfa fram á veginn, vega og meta kosti og galla og spyrja einfaldlega: Hvað þjónar okkur best til lengri tíma? Lesa meira

xd.is

Áður en lagt er af stað

Til er þekkt saga á Suðurlandi af tveimur vinum sem fóru í svokallað interrail-lestarferðalag um Evrópu eftir menntaskóla. Þegar þeir komu heim voru þeir spurðir hvort þeir hefðu aldrei villst. „Nei,“ svaraði annar þeirra, „við vissum aldrei hvert við vorum að fara.“ Sagan er skemmtileg og lýsandi fyrir þá félaga. En þegar framtíð þjóðar er… Lesa meira

xd.is

Arfleifð sem ber að varðveita

Málið snýst um meira en sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Það snýst um hver setur lögin, hver ræður yfir auðlindunum og hver ber ábyrgð gagnvart íslenskum kjósendum. Ég naut þeirrar gæfu að vera alin upp af eldra fólki. Móðir mín kynntist ekki rafmagni fyrr en hún var átján ára. Á æskuheimili hennar þurfti að sækja vatn í brunn. Lesa meira

xd.is

Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar

Á þjóðhátíðardaginn sameinumst við um það sem gerir okkur að þjóð. Við drögum fánann að húni, komum saman með fjölskyldu og vinum og minnumst þess að sjálfstæði Íslands er ekki sjálfsagður hlutur sem kom af sjálfum sér. Sjálfstæði okkar er árangur langrar baráttu og þeirrar sannfæringar að Íslendingar eigi sjálfir að ráða örlögum sínum. Þessi… Lesa meira

xd.is

Krónan er ekki gallalaus en evran er heldur ekki töfralausn

Umræða um íslensku krónuna blossar jafnan upp þegar verðbólga er mikil, vextir bíta heimilin og fyrirtæki finna fyrir óvissu í rekstri. Það er skiljanlegt þar sem gjaldmiðillinn snertir daglegt líf fólks; húsnæðislánin, matarkörfuna, rekstur fyrirtækja og afkomu ríkissjóðs. Umræða um gjaldmiðilinn verður hins vegar að vera yfirveguð og má verða pólitísk markaðssetning fyrir fyrirframákveðna niðurstöðu. Lesa meira

xd.is

Hvað felst í aðild?

Þjóðin á rétt á að vita hvað felst nákvæmlega í vegferð ríkisstjórnarinnar inn í ESB. Hvaða upplýsingar liggja til grundvallar, hvaða væntingar skal hafa til lengdar viðræðna og hvaða skilyrði forsætisráðherra hefur sett fyrir inngöngu. Það er ekki hægt að hefja þessa vegferð á frösum um að „segja já við tækifærum“ eða „að kíkja í… Lesa meira

xd.is

Takk fyrir traustið

Niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna er skýr. Sjálfstæðisflokkurinn er sterkasta stjórnmálaaflið á sveitarstjórnarstiginu. Árangurinn er fyrst og fremst kominn til vegna mikillar vinnu undanfarna mánuði, öflugrar grasrótar, sterkra framboða um land allt og skýrs málflutnings sem byggist á ábyrgð, frelsi og að hafa trú á fólkinu í landinu. Sjálfstæðisflokkurinn bauð fram í 34 sveitarfélögum í öllum landshlutum. Alls… Lesa meira

Vísir

Setjum X við D

Gleðilegan kjördag. Í dag kjósum við hvernig við viljum hafa nærsamfélög okkar næstu fjögur árin. Við kjósum um hvaða áherslur við viljum sjá í okkar nánasta umhverfi. Lesa meira

Vísir

Óboðlegar samgöngur til Eyja

Fyrir viku síðan steig ég fram í fjölmiðlum og sagði að staðan í samgöngum við Vestmannaeyjar væri óboðleg. Því miður hefur ekkert breyst. Lesa meira

xd.is

Ísland er ekki til sölu

Það eru grundvallarsannindi sem hver kynslóð þarf að rifja upp fyrir sjálfri sér. Eitt þeirra er þetta: Ísland er ekki til sölu. Það merkir ekki að við eigum að loka okkur af, hafna samstarfi við aðrar þjóðir eða óttast erlenda fjárfestingu, nýja þekkingu og aukin tengsl við umheiminn. Þvert á móti hefur farsæld Íslands ráðist… Lesa meira

xd.is

Þjóðin á betra skilið

Ríkisstjórnin tilkynnti í gær að þjóðaratkvæðagreiðsla um „framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ færi fram þann 29. ágúst. Þessi tímasetning er ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar í fyrirrúmi, enda getur engin upplýst umræða um málið farið fram að sumri þegar fólk er í sumarfríi með sínum nánustu. Þessi tímasetning er fyrst og fremst valin… Lesa meira

xd.is

Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu

Það er grundvallaratriði í velferðarsamfélagi að fólk sem býr við langvinn veikindi eða örorku hafi örugga framfærslu á sama tíma og því eru tryggð raunveruleg tækifæri til þátttöku. Um þetta eru flestir sammála. Við þurfum að nálgast þetta mál af virðingu, enda er það að standa þétt við bakið á þeim sem geta ekki hjálpað… Lesa meira

xd.is

Ábyrg forysta

Á undanförnum vikum hefur stjórnmálaumræðan færst í þá átt að aðild að Evrópusambandinu sé einhvers konar náttúrulegt svar við óvissu í heimsmálum. Að við eigum að bregðast við óvissu með því að færa okkur nær miðju Evrópu og láta stærra bákn taka við. Það er að mörgu leyti skiljanlegt að stjórnmálamenn leiti í festu þegar… Lesa meira

Vísir

Ríkisstjórnin ræður ekki við verkefnið

Í marga mánuði höfum við heyrt að planið sé að virka. Við höfum heyrt að verðbólgan sé loksins á niðurleið og ríkisstjórnin hafi náð tökum á ríkisfjármálunum. Staðreyndirnar segja aðra sögu. Verðbólgan mælist 5,2 prósent í janúar. Hún eykst milli mánaða og fer langt fram úr svartsýnustu spám greiningaraðila. Lesa meira

2025

Vísir

Jólagjöf ríkisstjórnarinnar

Alþingi lauk störfum í gær eftir þingvetur sem verður helst minnst fyrir skattahækkanir. Ríkisstjórn lýkur nú öðru þingi sínu og aftur var mest púður lagt í að hækka álögur á fólk og fyrirtæki. Lesa meira

Vísir

Fullveldi á okkar forsendum

Fyrsti desember, fullveldisdagur íslensku þjóðarinnar, er árviss áminning um hvað sjálfstæðið er okkur mikils virði og hvernig það hefur reynst okkur vel. Lesa meira

xd.is

ESB sýnir sitt rétta andlit

Ákvörðun Evrópusambandsins um að beita verndartollum á kísiljárn frá Íslandi og Noregi eru vatnaskil í samskiptum okkar við sambandið. Þetta er mikið áfall fyrir íslenskt samfélag og íslenskt atvinnulíf. Það er öllum ljóst að ESB hefur með þessari aðgerð sinni niðurlægt ríkisstjórnina og Ísland. Um er að ræða pólitíska ákvörðun sem hefur verið undirbúin í… Lesa meira

xd.is

Skýr stefna – sterkara Ísland

Sjálfstæðisflokkurinn er stærsta umbótaaflið í íslenskum stjórnmálum. Sú staðreynd skiptir öllu í þeirri stöðu sem þjóðin stendur frammi fyrir. Þegar aðrir setja fram frasa og nýyrði fyrir skattahækkanir setjum við fram skýrar leiðir til raunverulegra umbóta. Skýr stefna – sterkara Ísland. Á laugardaginn var héldum við sjálfstæðismenn vel heppnaðan fund þar sem við ræddum leiðina… Lesa meira

Vísir

Minna tal, meiri uppbygging

Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar kjarnast í hærri sköttum og auknum útgjöldum. Hann boðar fyrst og fremst kerfisbreytingar til lengri tíma en án bráðaaðgerða sem hjálpa fólki núna strax. Lesa meira

xd.is

Raunsæi í utanríkismálum

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Í opinberri umræðu hefur verið vísað í nýjan veruleika í alþjóðakerfinu og talað eins og aðild að Evrópusambandinu sé óumflýjanleg spurning sem þjóðin verði að svara. Slík framsetning er auðveld í yfirborðskenndri pólítík en dugar skammt þegar hagsmunir Íslands eru metnir með heildstæðum hætti. Spurningin sem skiptir íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki… Lesa meira

Vísir

Yfirborðskennd tiltekt

Það er okkur öllum til hagsbóta að ríkisfjármálin séu í góðu horfi. Um það eigum við að vera sammála. Sterk, trúverðug fjárlög vernda kaupmátt, flýta lækkun vaxta og skapa stöðugleika fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Lesa meira

Vísir

Velferð sem virkar

Nýtt örorku og endurhæfingarkerfi tekur gildi í dag og það er fagnaðarefni. Kerfið er einfaldara, réttlátara og hvetur fólk til þátttöku í atvinnulífi. Lögin sem leggja grunninn að breytingunum voru samþykkt 22. júní 2024 í tíð fyrri ríkisstjórnar, en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þá félags og vinnumarkaðsráðherra, mælti fyrir málinu. Lesa meira

xd.is

Tímamót í örorkumálum

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Í dag tekur gildi nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi sem markar tímamót í íslensku velferðarkerfi. Ég fagna þessum breytingum, en þær byggjast á lögum sem samþykkt voru í tíð fyrri ríkisstjórnar þann 22. júní 2024. Breytingarnar bæta afkomu, draga úr óþarfa skerðingum og gera fólki auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði. Þetta… Lesa meira

xd.is

Milli steins og sleggju

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Í aðdraganda kosninga hét Kristrún Frostadóttir því að hún ætlaði að beita sleggju til að ná niður vöxtum. Nú hefur vaxtalækkunarferlið stöðvast og stýrivextir haldast óbreyttir. Það blasir við að sleggjunni hefur verið beitt, en í ranga átt. Í stað þess að slá á rót vandans hefur ríkisstjórnin slegið á… Lesa meira

xd.is

Sterk hagsmunagæsla

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Ríkisvaldið er ekki til fyrir sjálft sig. Það er til fyrir fólkið í landinu. Þetta er einföld en skýr meginregla. Í henni felst að ríkið á að verja líf, frelsi og eignir borgaranna, tryggja virkt réttarríki og setja skýrar leikreglur sem stuðla að heilbrigðum og opnum markaði. Þegar stjórnvöld víkja frá… Lesa meira

xd.is

Leiðin að harðræði er vörðuð litlum skrefum

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Gærdagurinn fer í sögubækurnar sem svartur dagur í sögu Alþingis. Með því að beita 71. gr. þingskapalaga, svokölluðu kjarnorkuákvæði, ákvað ríkisstjórnin að loka umræðu um umdeildasta mál þingsins, hækkun veiðigjalda. Kristrún Frostadóttir er þar með fyrsti forsætisráðherrann frá 1959 sem mistekst að miðla málum í þinglokasamningum. Það er alvarlegur áfellisdómur yfir… Lesa meira

xd.is

Sjálfstæðisflokkurinn mun standa með lýðræðinu og fólkinu í landinu

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins: Ísland er ekki átakaþjóð. Okkur er annt um náungann og við höfum löngum lagt okkur fram við að leysa ágreining með samtali. Við ræðum, rökræðum, en leitum jafnan eftir hófstilltum niðurstöðum. Þess vegna er það þyngra en tárum taki að horfa upp á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kollvarpa rótgrónum siðum og hefðum… Lesa meira

Vísir

Ábyrgð og ábyrgðarleysi

Það sem við urðum vitni að í Kastljósi í gærkvöld er nýr kafli í pólitískum vinnubrögðum forsætisráðherra og hann er áhyggjuefni fyrir alla sem vilja sjá heilbrigt og virkt lýðræði. Þar var ekki bara ráðist að stjórnarandstöðunni, heldur var sú árás reist á rangfærslum, útúrsnúningum og tilraun til að stimpla lögmæt sjónarmið minnihlutans sem falsfréttir. Lesa meira

xd.is

17. júní – Dagur þjóðarinnar

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins: Þjóðhátíðardagur Íslendinga er dagur sem snertir streng í hjarta okkar allra. Þetta er dagurinn sem minnir okkur á hver við erum, hvað við höfum áorkað, og hvert við stefnum. Þann 17. júní 1944 tókum við afdrifaríka ákvörðun. Við stofnuðum lýðveldi. Við lýstum yfir fullu sjálfstæði, og í því fólst sterkyfirlýsing: Við… Lesa meira

Vísir

Ekkert kerfi lifir af pólitískan geðþótta

Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir raunverulegum og vaxandi áskorunum í útlendingamálum. Þessar áskoranir snúast ekki eingöngu um fjölda umsækjenda, aðlögun að íslensku samfélagi eða kerfislæga hluti. Lesa meira

xd.is

Hetjur hafsins

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Íslendingar hafa um áratugaskeið haldið hátíðlegan sjómannadag til að heiðra sjómennina okkar, þessar hetjur hafsins sem hafa staðið vaktina á ólgusjó í blíðu og stríðu. Þessi dagur er ekki aðeins tækifæri til að fagna með fjölskyldum og vinum, heldur fyrst og fremst til að þakka sjómönnum fyrir ómetanleg störf í þágu… Lesa meira

Vísir

Skreytt með stolnum fjöðrum

Það er margt forvitnilegt við viðtalið sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gaf á Sprengisandi í gær. Þar kynnti hún aðgerðir á borð við afturköllun verndar fyrir sakamenn, aukið landamæraeftirlit, stofnun brottfarar- og móttökustöðva og samninga við flugfélög um afhendingu farþegalista. Lesa meira

xd.is

Hver gætir varðanna?

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins: Ég lít á það sem eitt helsta verkefnið okkar á þingi að standa vörð um réttindi borgaranna gagnvart ríkisvaldinu. Þegar alvarlegar ásakanir koma fram um að þvingunaraðgerðir á viðkvæmum tíma hafi hugsanlega verið framkvæmdar með ólögmætum hætti, án nægilegs gagnsæis og með óljósum heimildum, þá ber okkur að bregðast við af… Lesa meira

xd.is

Sterk gildi á óvissutímum

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður: Páskarnir eru tími íhugunar, vonar og endurnýjunar – tími þegar við lítum bæði inn á við og fram á við. Endurnýjun þýðir ekki að við yfirgefum það sem hefur reynst okkur vel, heldur að við vöxum, aðlögumst og styrkjum það sem skiptir mestu máli. Í pólitík þýðir það að… Lesa meira

Vísir

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér

Á flokksþingi Repúblikana í Bandaríkjunum árið 1988 stóð forsetaframbjóðandinn George H. W. Bush og sagði: „Read my lips: No new taxes.“ (Lestu varirnar á mér: Engir nýir skattar.) Hann sigraði kosningarnar í kjölfarið – en hækkaði svo skatta. Loforðasvikin kostuðu hann forsetastólinn. Lesa meira

xd.is

Ábyrgðarlaust áhlaup á atvinnulífið

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins: Atvinnuvegaráðherra hefur kynnt áform um verulega hækkun veiðigjalda. Um er að ræða stórfellda breytingu á rekstrarskilyrðum einnar mikilvægustu atvinnugreinar þjóðarinnar. Engu að síður virðast tillögurnar hafa verið unnar í flýti, án nauðsynlegs samráðs og án faglegs undirbúnings. Ekki liggur fyrir heildstæð greining á áhrifum hækkunarinnar. Hver verða áhrifin á byggðaþróun? Á… Lesa meira

xd.is

Til fundar við fólkið

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins: Á nýliðnum landsfundi naut ég þess trausts að vera kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins. Það er mér mikill heiður og ábyrgð sem ég tek við af auðmýkt og af festu. Ég heiti því að vinna af krafti, áræði og skýrri sýn með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Landsfundurinn var hinn stærsti i sögu flokksins. Lesa meira

Vísir

Stækkum Sjálfstæðisflokkinn

Það eru margar ástæður fyrir því að ég býð mig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Fyrst og fremst vegna þess að ég tel mig geta eflt flokkinn, aukið fylgi hans og tryggt að hann verði áfram leiðandi afl í íslensku samfélagi. Það er frumskylda formanns að tryggja að flokknum vegni vel, því sterkari Sjálfstæðisflokkur þýðir sterkari málsvari frelsis, atvinnulífs og framfara. Lesa meira

Vísir

Sannleikurinn um undirbúning útlendingafrumvarpsins

Það kemur núverandi ríkisstjórn eflaust á óvart hversu miklar kröfur eru gerðar til valdhafanna. Það er eðlilegt og þess vegna þykir mér bagalegt þegar ráðherrar fara með ósannindi um störf forvera sinna. Í grein núverandi dómsmálaráðherra sem birtist á Vísi í gær kemur fram að engin vinna hafi átt sér stað við undirbúning frumvarps um afturköllun á alþjóðlegri vernd einstaklinga sem hafa gerst sekir um alvarleg brot. Þetta er einfaldlega rangt. Lesa meira

2024

xd.is

Einfalt val

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi: Á morgun veljum við framtíðina. Við veljum ekki aðeins ríkisstjórn næstu fjögurra ára, heldur þau gildi og þá stefnu sem munu móta samfélagið okkar til lengri tíma. Valkostir kjósenda eru skýrir: Annaðhvort fjölflokka vinstristjórn með augastað á Evrópusambandinu með tilheyrandi skattahækkunum og óvissu, eða Sjálfstæðisflokkinn sem stendur… Lesa meira

Vísir

Staðreyndir í útlendingamálum

Sjálfstæðisflokkurinn hefur um árabil talað með ábyrgum hætti um stöðu mála í verndarkerfinu og lagt fram tillögur að breytingum á útlendingalögum. Lesa meira

Vísir

Öflug garðyrkja – lykill að matvælaöryggi og grænni framtíð

Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á að styðja við garðyrkju á Íslandi og tryggja raforkuöryggi fyrir heimili og minni fyrirtæki. Með öflugri stefnu okkar í orkumálum höfum við lagt grunninn að sjálfbærri innlendri framleiðslu og samkeppnishæfu rekstrarumhverfi fyrir garðyrkjubændur. Lesa meira

Vísir

Nýtt fangelsi – fyrir öruggara samfélag

Nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni mun valda straumhvörfum í fullnustumálum á Íslandi. Ég kynnti byggingu fangelsisins í vikunni en um er að ræða mikilvægt verkefni sem snertir okkur öll. Lesa meira

Vísir

Örugg landamæri eru forgangsmál

Eitt af áherslumálum Sjálfstæðisflokksins er að styrkja íslensk landamæri og skal það engan undra. Staðan í heiminum, sem við förum ekki varhluta af, er alvarleg og kallar á að við höldum þétt utan um landamæri okkar. Lesa meira

Vísir

Mannúðlegri úrræði

Ísland stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum þegar kemur að móttöku og meðferð hælisleitenda, einkum þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn sinni og ber því að yfirgefa landið í samræmi við lög og alþjóðlegar skuldbindingar okkar. Þrátt fyrir árangur í málaflokknum er ljóst að okkur skortir enn brottfararúrræði sem tryggir heildstæða og skilvirka stjórn í útlendingamálum. Lesa meira

Vísir

Góða skemmtun kæru landsmenn

Vitundarvakning sem ber yfirskriftina „Góða skemmtun“ stendur yfir í sumar. Markmiðið er að tryggja að við öll getum notið skemmtana á öruggan og ofbeldislausan hátt. Lesa meira

Vísir

Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum

Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði. Lesa meira

2023

Vísir

Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags

Skýrar vísbendingar hafa komið fram á síðustu árum um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulegum hætti, þar á meðal alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Lesa meira

Vísir

Stórtækar umbætur í fangelsismálum

Framundan eru stórtækar umbætur í fangelsismálum hérlendis með það að markmiði að byggja upp fangelsi og fullnustukerfi sem sæmir nútímaþjóðfélagi, með bætt öryggi og aðstöðu til betrunar að leiðarljósi. Lesa meira

Vísir

Lofsöngur um lygina

Í Heimildinni birtist á dögunum grein undir fyrirsögninni „Lágkúra illskunnar“ eftir Láru Pálsdóttur, félagsráðgjafa. Greinin er dæmigerð fyrir málflutning margra þeirra sem ekki vilja una niðurstöðu Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála (og í sumum tilvikum einnig dómstóla). Lesa meira

Vísir

Góða skemmtun gera skal

Ein helsta ferðahelgi þjóðarinnar er framundan - verslunarmannahelgin. Rík hefð er fyrir viðburðum og útihátíðum út um allt land og dagarnir framundan eru engin undantekning hvað það varðar. Ég vil því senda öllum landsmönnum góða kveðju með ósk um að allir skemmti sér vel og að allir komi heilir heim. Lesa meira

2022

Valdefling launafólks

Nýlega mæltu 11 þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir frumvarpi um vernd félagafrelsis á íslenskum vinnumarkaði. Markmið frumvarpsins er að... Lesa meira

Störf án staðsetningar

Síðustu áratugi höfum við verið í mikilli varnarbaráttu varðandi fólksfækkun íbúa á landsbyggðinni. Það hefur sýnt sig að fólk vill búa... Lesa meira

1.400 kílómetrar!

Kjördæmavika Alþingis er að baki. Þá starfar þingið ekki heldur gefst alþingismönnum færi á að fara um kjördæmin sín og heilsa upp á fólk... Lesa meira

Vísir

Stórtíðindi í heilsugæslu á Suðurnesjum

Þau gleðilegu tíðindi bárust okkur í byrjun þessa mánaðar að Sjúkratryggingar Íslands, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins, hafa auglýst eftir rekstraraðila til að reka nýja heilsugæslustöð í Reykjanesbæ en um verður að ræða heilsugæslustöð í rúmlega eitt þúsund fermetra húsnæði að Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. Þetta verður fyrsta sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðin utan höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira

Vísir

Tökum flugið með Nice Air!

Nú í morgunsárið tók á loft flugvél flugfélagsins Nice Air frá Akureyrarflugvelli í sína jómfrúarferð og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Þar með er hafið áætlunarflug á milli Norðurlands og áfangastaða í Evrópu. Lesa meira

Góðir íbúar Vestmannaeyja!

Að baki er einstaklega vel heppnað prófkjör Sjálfstæðisflokksins hér í bæ og hefur listi framboðsins verið samþykktur. Það er ekki hægt... Lesa meira

Vísir

Landsvirkjun fyrir almannahag

Fyrir um tveimur árum viðraði ég fyrst þá skoðun opinberlega að til greina kæmi að ríkið seldi lífeyrissjóðum landsins 30-40% hlut í Landsvirkjun en með ströngum skilyrðum. Þetta gerði ég þá sem ég formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða. Lesa meira

Fjöður verður að fimm hænum

Fréttablaðið sló því upp á forsíðu 24. febrúar síðastliðinn að formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telji koma til greina að... Lesa meira

Kæri íbúi Suðurkjördæmis!

Nú styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar, en kosið verður þann 14. maí næstkomandi. Við Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi göngum... Lesa meira

2021

Vísir

Íslandsbanki: Eftir hverju er að bíða?

Það var reglulega ánægjulegt að fylgjast með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra taka við verðlaunum fyrir viðskipti ársins að mati dómnefndar Innherja, nýs viðskiptamiðils Vísis. Lesa meira

Vísir

Heimilin og störfin þurfa ábyrga stjórn

Valið á morgun er kristaltært. Við stöndum fyrir fleiri og verðmætari störf um allt land. Við munum halda áfram að standa með fólki í rekstri og auka tekjur heimilanna. Við munum halda áfram að byggja upp öflugt atvinnulíf á Íslandi. Lesa meira

Ögurstund í kjörklefanum

Stundarkornið á kjörstað hverju sinni vekur með kjósandanum jafnan sérstakar tilfinningar og hefur meiri og víðtækari áhrif en marga... Lesa meira

Það er best að kjósa XD

Í gegnum alla sögu Sjálfstæðisflokksins hefur flokkurinn alltaf staðið með bændum. Á því verður engin breyting á minni vakt. Það sem... Lesa meira

Vísir

Sjálfstæðisflokkurinn er sterkur í loftslagsmálum!

Ég skil að vissu leyti að sumir haldi að Sjálfstæðisflokkurinn, sem er sá flokkur sem lætur sig kröftugt atvinnulífið mestu varða og hefur um áratugaskeið ýtt undir framkvæmdir og framfarir þar, hafi ekki gefið loftlagsmálum nægan gaum. Lesa meira

Leiðin til árangurs

„Hvernig dettur þér þetta í hug, Guðrún?,“ er spurning sem ég fæ oft frá fólki sem ég hitti á ferðalagi mínu um okkar ágæta Suðurkjördæmi... Lesa meira

Fólkið fyrst, svo kerfið

Gangi spár eftir verður rúmlega helmingur þeirra barna sem nú fæðast 105 ára. Það er ótrúlegt, sérstaklega þegar haft er í huga að fyrir... Lesa meira

Vísir

Fólkið fyrst, svo kerfið

Gangi spár eftir verður rúmlega helmingur þeirra barna sem nú fæðast 105 ára. Það er ótrúlegt, sérstaklega þegar haft er í huga að fyrir liðlega hundrað árum var meðalævilengd Íslendinga um 55 ár! Lesa meira

Vísir

Eflum heilsugæsluna

Ég finn á ferðum mínum vegna kosninganna að fólk vill helst ræða heilbrigðismál og þjónustu heilbrigðiskerfisins. Heimsfaraldur COVID-19 hefur sjálfkrafa sett heilbrigðismál sem fyrsta lið á dagskrá þjóðmálaumræðunnar og á því máli eru ótal hliðar og mismunandi sjónarhorn. Lesa meira

Eflum heilsugæsluna

Ég finn á ferðum mínum vegna kosningann að fólk vill helst ræða heilbrigðismál og þjónustu heilbrigðiskerfisins. Heimsfaraldur COVID-19... Lesa meira

Takk fyrir stuðninginn!

Nú að afloknu velheppnuðu prófkjöri Sjálfstæðismanna hér í Suðurkjördæmi er mér bæði ljúft og skylt að þakka öllum þeim sem tóku þátt í... Lesa meira

Bjart yfir Suðurkjördæmi

Á vettvangi stjórnmálanna bíða mörg verkefni sem varða hag landsmanna allra. Við þurfum að hvetja einstaklinga til dáða og virkja þannig... Lesa meira

Ég á erindi við þig

Komið er að því að sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi velji frambjóðendur sína til Alþingis í kosningunum í haust . Nú er tækifæri til að... Lesa meira

Ásbrú okkar Kísildalur?

Sílikon dalur nefnist þekkt landsvæði í Norður Kaliforníu. Í fyrstu vegna framleiðslu á kísilflögum, en nú vegna hátækni. Lesa meira

Á hverju ætlum við að lifa?

Á næstu 30 árum þurfum við að skapa um 60.000 ný störf. Það jafngildir 2.000 störfum á ári eða um 40 nýjum störfum í hverri einustu viku... Lesa meira

Við eigum samleið

Nýlega tilkynnti ég ákvörðun mína um að sækjast eftir 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri sem fram fer í maí vegna... Lesa meira

2019

Vísir

Lágmörkum kolefnissporin

Í sumar hef ég notið þess að hann Kristmundur garðyrkjubóndi, sem er með sína framleiðslu nánast á móti mínu húsi, setti upp verslun á sínum afurðum úti á götu. Lesa meira

Vísir

Grundvöllur lífskjara

Aldarfjórðungur er liðinn síðan EES-samningurinn tók gildi á Íslandi. Samningurinn hefur reynst vera einn mikilvægasti samningur sem Ísland hefur gert á lýðveldistímanum. Lesa meira

Vísir

Já, við höfum gengið til góðs!

Við búum við heildstætt lífeyrissjóðakerfi fyrir alla landsmenn í anda samtryggingar, kerfi sem þykir á margan hátt til fyrirmyndar og horft er til af erlendum sjónarhólum. Lesa meira

Vísir

Iðnaður er undirstaða

Við sem stöndum í fylkingarbrjósti á vinnumarkaði vitum að leysa verður úr kjaradeilunni. Atvinnurekendur vilja að sjálfsögðu geta greitt starfsfólki sínu góð laun og öll viljum við að fólk geti lifað góðu lífi á Íslandi. Lesa meira

2018

Vísir

Epli og ástarpungar

Epli og appelsínur eru hvort tveggja matvörur og hnöttóttar á að líta. Það er líka hið eina sem þær eiga sameiginlegt. Við frekari samanburð yrði frekar fjallað um það sem ólíkt er með þessum vörum. Lesa meira

Vísir

Nám sem opnar dyr

Þau ánægjulegu tíðindi bárust í vikunni að aðsókn í verk- og starfsnám jókst um þriðjung. Lesa meira

2017

Vísir

Öflugir og traustir lífeyrissjóðir

Undanfarið hafa ítrekað birst í opinberri umræðu rangar fullyrðingar um lífeyrissjóði landsmanna. Virðist sem tilgangurinn sé að vekja sem mesta tortryggni í garð sjóðanna og lífeyriskerfisins. Lesa meira

2016

Vísir

Kjósum gott líf

Öflugt, fjölbreytt og samkeppnishæft atvinnulíf er forsenda góðra lífskjara hér á landi. Samkeppnishæfni íslensks iðnaðar ræðst að miklu leyti af þeirri umgjörð sem stjórnvöld á hverjum tíma skapa. Þegar kosið er til Alþingis er því í reynd verið að kjósa um samkeppnishæfni sem er forsenda góðs lífs hjá öllum landsmönnum. Lesa meira

Vísir

Hvað viltu læra?

Nú um stundir standa þúsundir ungmenna frammi fyrir því að velja sér námsleið að loknu grunnskólanámi. Með þeirri ákvörðun eru mörkuð skref í átt að framtíðarstarfinu. Lesa meira

2015

Vísir

Ábyrgð skilar árangri

Það er deginum ljósara að það er vandasamt verkefni að búa svo um hnútana að hækkanir kjarasamninga renni ekki allar út í verðlag en það er á ábyrgð okkar atvinnurekenda að sjá til þess að svo verði ekki. Lesa meira

Vísir

Matvælalandið Ísland – gæði, ferskleiki og sérstaða

Samstarfshópur um Matvælalandið Ísland stóð fyrir ráðstefnunni Útflutningur – til mikils að vinna fyrir skömmu. Að samstarfshópnum standa Samtök iðnaðarins, Íslandsstofa, Bændasamtök Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök ferðaþjónustunnar, Matís og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Lesa meira

2014

Vísir

Stendur þú skil á þínu?

Í vor var ég á fundi með nokkrum félagsmönnum í Samtökum iðnaðarins þegar ég var spurð eftirfarandi spurningar: "Hvernig ætlar þú að útrýma svartri atvinnustarfsemi nú þegar þú ert orðin formaður SI?“ Lesa meira

Vísir

Breytingar á neyslusköttum – mikilvægt skref í rétta átt

Boðaðar breytingar á virðisaukaskatti og afnám vörugjalda í nýju fjárlagafrumvarpi eru afar jákvæðar fyrir íslenskt efnahagslíf. Bæði neytendur og framleiðendur munu njóta góðs af breytingunum og innheimta skatta fyrir ríkissjóð verður einfaldari og skilvirkari. Lesa meira

Vísir

Höft hefta

Undanfarna daga hefur mikið verið rætt um gjaldeyrishöft og þann skaða sem þau valda íslenskum fyrirtækjum. Lesa meira