Þjóðin á betra skilið
Ríkisstjórnin tilkynnti í gær að þjóðaratkvæðagreiðsla um „framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“ færi fram þann 29. ágúst. Þessi tímasetning er ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar í fyrirrúmi, enda getur engin upplýst umræða um málið farið fram að sumri þegar fólk er í sumarfríi með sínum nánustu. Þessi tímasetning er fyrst og fremst valin vegna hentisemi ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin reynir að stilla þessu upp þannig að andstaða við ESB jafngildi andstöðu við það að spyrja þjóðina. Það er lýðskrum í takt við annað úr þessum ranni. Þá mun ríkisstjórnin reyna að kynna þetta sem saklaust fyrsta skref. Að við séum „bara að kíkja í pakkann og sjá hvað sé í boði“.
Það liggur alveg fyrir hvað er í boði. Evrópusambandið byggir á stofnsáttmála og regluverki sem aðildarríki þurfa að taka upp. Ekkert ríki gengur inn í þetta ferli án þess að aðlaga regluverk sitt, kafla fyrir kafla, og færa íslensk lög og stjórnsýslu nær sameiginlegum reglum. Það segir einfaldlega í gögnum sambandsins. Það eru engar undanþágur frá stofnsáttmálum ESB fyrir umsóknarríki, eins og forystumenn þess hafa ítrekað lýst yfir. Þess vegna er varasamt að tala eins og hægt sé að fara af stað án þess að það hafi raunverulegar afleiðingar.
Ég treysti þjóðinni. En ég treysti ekki þessari ríkisstjórn til þess að gæta að hagsmunum þjóðarinnar. Þjóðin þarf að fá að segja sitt á grundvelli staðreynda og upplýstrar og vandaðrar umræðu. Ekki á grundvelli slagorða og hagræddum sannleika ríkisstjórnarinnar.
Umboðið er ekki til staðar
Ríkisstjórnin talar eins og hún hafi skýrt umboð til að fara af stað í þessa vegferð núna. Ég er ekki sammála því. Þessi vegferð var ekki lögð skýrt fram fyrir kjósendur fyrir kosningar. Raunar var engin umræða um málið og forsætisráðherra sagði fyrir kosningar að hún teldi þetta ekki rétta tímann til að fara í þessa vegferð heldur fannst henni mikilvægara að „sameina jafnaðarfólk um atriði sem eru í nærumhverfi okkar akkúrat núna“. Hún sagði jafnframt að mál af þessari stærðargráðu krefðist sterks umboðs og mikillar samstöðu. Fyrir liggur að hvorugt á við núna, og efast má um hvort samstaða sé um málið innan ríkisstjórnarinnar. Í sex skipti hefur menntamálaráðherra lagt fram þingsályktunartillögu um að umsókn Íslands að ESB verði dregin til baka. Nú er annað hljóð í hennar flokki, enda hafa samstarfsflokkarnir greitt fyrir fram fyrir hlýðni í þessu máli.
Óljós samningsmarkmið
Ríkisstjórnin hefur enn ekki svarað grundvallarspurningunni um samningsmarkmið Íslands. Hver eru markmiðin nákvæmlega? Hverjar eru rauðu línurnar sem ekki má stíga yfir? Hvaða svigrúm telur ríkisstjórnin vera raunverulega til staðar um þá málaflokka sem skipta okkur mestu máli, sjávarútveg, orkumál og landbúnað? Hingað til hefur málflutningur ríkisstjórnarinnar byggst á óskhyggju fremur en öðru, og þess vegna stendur eftir spurningin, hvers vegna er verið að flýta þessu ferli?
Ég held að svarið blasi við fólki. Ríkisstjórnin er ekki með augun á boltanum hér heima fyrir og ræður ekki við verkefnið. Heimilin glíma við þráláta verðbólgu. Vextirnir eru enn of háir. Atvinnuleysi er á uppleið. Fyrirtæki finna fyrir óvissu og aukinni byrði. Það sem fólk biður um er einfalt: Stöðugleiki, ábyrg hagstjórn, minni álögur og meira frelsi.
Skert samkeppnishæfni innan ESB
Þeir sem vilja keyra Ísland inn í ESB tala gjarnan eins og þetta sé sjálfgefin leið til aukinnar velmegunar og fjárfestinga. Í nýrri skýrslu Business Europe, samtaka atvinnurekenda innan Evrópu, sem kom út í gær kemur fram að yfir 80% atvinnurekenda innan samtakanna telja að aðdráttarafl ESB fyrir alþjóðlegar fjárfestingar hafi ekki aukist, og jafnvel minnkað, á undanförnum árum. Þar er talað um íþyngjandi regluverk, háan orkukostnað, langa leyfisferla, takmarkað aðgengi að fjármagni og skattkerfi sem styður ekki nægilega við langtímafjárfestingar.
Þetta eru skýr aðvörunarorð frá þeim sem standa í framleiðslu, útflutningi og verðmætasköpun innan ESB.
Við í Sjálfstæðisflokknum munum taka þessa umræðu af yfirvegun og festu. Við stöndum fyrir öflugu samstarfi við Evrópuríki og traustum EES-samningi, en um leið höldum við skýrt í það sem skiptir Ísland mestu, fullveldið, auðlindirnar og réttinn til að ráða eigin framtíð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla á ekki að verða felustaður fyrir ríkisstjórn sem hefur misst tökin á efnahagsmálunum. Íslendingar eiga skilið forystu sem leysir aðkallandi mál hér heima í stað þess að teyma þjóðina út í óvissu.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.