Guðrún Hafsteinsdóttir

Áður en lagt er af stað

Til er þekkt saga á Suðurlandi af tveimur vinum sem fóru í svokallað interrail-lestarferðalag um Evrópu eftir menntaskóla. Þegar þeir komu heim voru þeir spurðir hvort þeir hefðu aldrei villst. „Nei,“ svaraði annar þeirra, „við vissum aldrei hvert við vorum að fara.“

Sagan er skemmtileg og lýsandi fyrir þá félaga. En þegar framtíð þjóðar er annars vegar dugar ekki að leggja af stað og sjá svo til.

Þann 29. ágúst verður þjóðin beðin um að veita ríkisstjórninni umboð til að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Því er stillt upp sem saklausum könnunarleiðangri þar sem við fáum samning á borðið og ákveðum okkur síðar.

Það er rangt og mjög villandi framsetning á því hvað aðildarviðræður eru í raun. Með aðildarviðræðum er ekki einungis verið að afla upplýsinga heldur hefst þá ferli sem er skýrt afmarkað í lögum og hefur það markmið að gera aðildarsamning.

Grundvallarreglur sambandsins eru kunnar og áfangastaðurinn því ekki óþekktur. Það sem ríkisstjórnin hefur ekki sýnt þjóðinni er ferðaáætlunin.

Forsætisráðherra hefur sagt að hún hafi rauðar línur sem hún muni ekki samþykkja að fara yfir. En hverjar eru þær? Hvar mun ríkisstjórnin ekki gefa eftir? Hvað þarf að fást fram í sjávarútvegi og landbúnaði? Hvað gerist ef Evrópusambandið hafnar kröfum Íslands?

Þessu hefur ekki verið svarað. Samt er þjóðin beðin um umboðið fyrst og svo á hitt að koma í ljós síðar. Með þessu er byrjað á öfugum enda.

Ég dreg ekki í efa að forsætisráðherra vilji landi sínu vel. En í lýðræðisríki kemur velvilji ekki í stað skýrs umboðs. Stórar þjóðarákvarðanir eiga ekki að byggjast á persónulegu trausti til eins leiðtoga eða einnar ríkisstjórnar. Fyrst eiga markmiðin, skilyrðin og rauðu línurnar að liggja fyrir. Síðan er hægt að biðja þjóðina um umboð.

Okkur er sagt að Ísland sé þegar „75% í Evrópusambandinu“. Þegar utanríkisráðuneytið tók þetta síðast saman reyndist Ísland hafa tekið upp 13,4% af regluverki ESB. EES-samningurinn nær fyrst og fremst til innri markaðarins. Utan hans standa meðal annars sjávarútvegur, landbúnaður, tollabandalag, viðskiptastefna og myntbandalag. Allt hlutir sem skipta okkur gríðarlegu máli.

Á sama tíma er sagt að aðild breyti litlu vegna þess að við séum þegar „75% inni“. Þau 25% sem eftir standa hljóta þá að eiga að breyta gjaldmiðlinum, vöxtunum, samkeppninni, viðskiptastefnunni og áhrifum Íslands. Þessi málflutningur gengur ekki upp enda getur hann ekki verið í senn smáatriði og meginröksemdin fyrir aðild.

Ég virði þá sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ég er þeim ósammála. Ég tel hagsmunum okkar best borgið sem sjálfstæðu ríki utan sambandsins, í nánu samstarfi við Evrópu, með forræði yfir auðlindum okkar, utanríkisstefnunni og frelsi til að velja okkar eigin leiðir.

Við eigum ekki að hefja margra ára aðildarferli nema við viljum í raun og veru stefna að aðild enda er það markmiðið með aðildarferlinu.