Arfleifð sem ber að varðveita
Málið snýst um meira en sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Það snýst um hver setur lögin, hver ræður yfir auðlindunum og hver ber ábyrgð gagnvart íslenskum kjósendum.
Ég naut þeirrar gæfu að vera alin upp af eldra fólki. Móðir mín kynntist ekki rafmagni fyrr en hún var átján ára. Á æskuheimili hennar þurfti að sækja vatn í brunn. Annar afi minn fæddist árið 1893 og hinn árið 1900. Sá síðarnefndi fæddist í torfbæ, sló garðinn með orfi og ljá og bjó síðar á heimili okkar og tók þátt í að ala okkur systkinin upp.
Þetta fólk tilheyrði kynslóð sem tók við fátæku og vanþróuðu landi en skilaði af sér nútímalegu velferðarsamfélagi. Hún beið ekki eftir því að aðrir leystu verkefnin. Hún tók ábyrgð og með framtaki skapaði hún meira úr minna. Þegar Íslendingar fengu aukin yfirráð yfir eigin málum fylgdu framfarir í kjölfarið: vegir, hafnir, skólar, öflugt atvinnulíf og lífskjör sem fyrri kynslóðir hefðu vart getað ímyndað sér.
Á grunni sjálfstæðis var landið byggt og það á einnig við um yfirráðin yfir fiskimiðunum, sem fengust ekki að gjöf. Fyrri kynslóðir börðust fyrir þeim vegna þess að þær vissu að lífsbjörg þjóðarinnar yrði best varðveitt í höndum hennar sjálfrar.
Hver kynslóð fær arfleifð í hendur og það er á hennar ábyrgð að varðveita arfinn og skila honum til næstu kynslóða. Okkur var ekki treyst fyrir sjálfsákvörðunarréttinum til þess umgangast hann af léttúð.
Við megum ekki framselja ákvörðunarvaldið
Við stöndum nú frammi fyrir ákvörðun um hvort hefja eigi á ný vegferð að inngöngu í Evrópusambandið. Þann 29. ágúst kjósum við um hvort leggja eigi af stað inn í ferli sem hefur skýra stefnu og kallar á verulegt framsal ákvörðunarvalds.
Síðustu dagar hafa svipt hulunni af einu stærsta ágreiningsefninu. Michiel Hoogeveen, þingmaður hollenska þingsins, spurði Rob Jetten forsætisráðherra beint hvort afstaða Hollands væri sú að sameiginlega sjávarútvegsstefnan stæði óhögguð og að ríki sem vildu fulla aðild að Evrópusambandinu yrðu að gangast undir hana. Svar Jettens var skýrt já. Hollenska þingið samþykkti síðar, með yfirgnæfandi meirihluta, ályktun sem fól ríkisstjórninni að staðfesta á vettvangi Evrópusambandsins að sameiginlega sjávarútvegsstefnan, þar á meðal reglur um aðgang að hafsvæðum og fiskimiðum, væri óaðskiljanlegur hluti regluverks sambandsins í aðildarviðræðum.
Þá kom fram í svörum Mariu Reumert Gjerding, umhverfisráðherra Danmerkur, þann 12. júní sl. að ekkert núverandi aðildarríki ESB hefði fengið varanlega undanþágu frá regluverki sambandsins á sviði sjávarútvegs svo vitað væri.
Utanríkisráðherra svaraði þessum tíðindum ekki efnislega. Hún beindi spjótum sínum þess í stað að Morgunblaðinu og sagði afstöðu forsætisráðherra Hollands ekki samræmast þeim samtölum sem hún hefði átt við Hollendinga og aðra innan Evrópusambandsins.
Vandinn er sá að ráðherrann hefur ekki viljað upplýsa þing og þjóð með skýrum hætti um þessi samtöl. Það er því ekki hægt að ætlast til þess að ótilgreind samtöl vegi þyngra en opinber orð forsætisráðherra Hollands og afdráttarlaus afstaða hollenska þingsins eða umhverfisráðherra Danmerkur.
Hagur þjóðarinnar skiptir mestu máli
Þegar öllu er á botninn hvolft snýst málið þó um meira en sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Það snýst um hver setur lögin, hver ræður yfir auðlindunum og hver ber ábyrgð gagnvart íslenskum kjósendum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur skýra afstöðu: Hag þjóðarinnar og yfirráðum hennar yfir auðlindum sínum er best borgið utan ESB. Um leið eigum við að vera opin, alþjóðleg og virk í samstarfi. EES-samningurinn tryggir aðgang að innri markaðnum og Ísland á að efla viðskipti og samstarf við þjóðir beggja vegna Atlantshafsins.
Forfeður okkar þekktu smæð landsins en trúðu samt á framtíð Íslands og lögðu mikið á sig til þess að næstu kynslóðir á eftir fengju meiri tækifæri en þeir fengu sjálfir notið.
Okkar verkefni er að skila börnum okkar sama rétti. Að þau geti sjálf ráðið landi sínu, lögum þess og auðlindum. Sjálfstæðið er arfur sem fyrri kynslóðir færðu okkur. Það er arfur sem ber að varðveita og skila óskertum áfram.