Billegur Bláskógaskattur
Ríkisstjórnin verður að falla frá fyrirhuguðum „Bláskógaskatti“ og hækkun virðisaukaskatts á baðlón. Á fundi með ferðaþjónustunni á Selfossi í síðustu viku komu fram þungar áhyggjur af þessum áformum, en þar töluðu atvinnurekendur og sveitarstjórnarfólk sem þekkja af eigin raun hvernig fyrirtækin, störfin og þjónustan í byggðunum tengjast. Ríkisstjórnin þarf að hlusta á það fólk.
Ferðaþjónustan sýnir hverju einkaframtakið getur áorkað. Um allt land hefur fólk lagt eigið fé og ómælda vinnu í að taka á móti gestum, byggja gististaði og þróa nýja afþreyingu. Ég þekki af eigin reynslu úr fyrirtækjarekstri og forystu í íslensku atvinnulífi hvers slík uppbygging krefst.
Ein sveit greiðir fyrir allar hinar
Nú vilja stjórnvöld innheimta nýtt náttúru- og innviðagjald vegna heimsókna á Þingvelli, að Geysi og Gullfossi. Almenna gjaldið verður 4.500 krónur á fullorðinn gest sem hefur ekki skattalega heimilisfesti hér. Allir þrír staðirnir eru í Bláskógabyggð og þaðan á að sækja sex til sjö milljarða króna árlega í ríkissjóð vegna verkefna sem eiga að gagnast ferðaþjónustu um land allt.
Hvers vegna á atvinnulífið í einu sveitarfélagi að bera þessa sérstöku byrði? Náttúruperlur Gullna hringsins laða gesti til Íslands og standa undir viðskiptum fjölda fyrirtækja langt út fyrir sveitarfélagsmörkin. Með þessari útfærslu skapa stjórnvöld hvata til að sleppa heimsókn þangað sem mun leiða af sér minni viðskipti við rekstraraðila í nágrenninu.
Rök ríkisstjórnarinnar um nauðsyn innviðauppbyggingar taka ekki á þessu. Í greinargerð með frumvarpinu er beinlínis tekið fram að gjaldið eigi ekki að endurspegla kostnað eða álag vegna einstakrar heimsóknar á þessa staði. Tekjurnar verða heldur ekki eyrnamerktar uppbyggingu þeirra. Þarna er skattur því lagður á afmarkað svæði til almennrar tekjuöflunar ríkisins. Heitið innviðagjald breytir engu um það.
Á Þingvöllum á auk þess að afnema bílastæðagjöld og bæta þjóðgarðinum tekjutapið með framlögum úr ríkissjóði. Hvers vegna á að skipta út núverandi tekjustofni fyrir miðlægt innheimtu- og eftirlitskerfi sem krefst aukinnar stjórnsýslu? Þetta er lýsandi dæmi um furðulega forgangsröðun vinstristjórnarinnar.
Skattlagning fram úr hófi
Ferðamenn greiða þegar skatta og gjöld með gistingunni, akstrinum og öðrum viðskiptum sínum. Stjórnvöld verða að gera grein fyrir nýtingu þessara tekna og þeirri viðbótarþörf sem þau telja að ekki sé mætt. Þau geta ekki gengið að því vísu að gestir borgi sífellt meira án þess að breyta ferðaáformum sínum. Ferðamaðurinn getur valið annað land eða keypt minni þjónustu hér. Hvort tveggja hefur áhrif á tekjur íslenskra fyrirtækja og ríkissjóðs.
Samhliða þessu á að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Baðlónin hafa orðið mikilvægur hluti af aðdráttarafli Íslands og skapað forsendur fyrir heilsársstörfum víða um land. Gestir þeirra kaupa líka gistingu, máltíðir og aðra þjónustu í nágrenninu. Hærri skattur skerðir svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og getur gert fyrirtækjunum erfiðara að halda opnu yfir veturinn. Hækkunin nær jafnframt til íslenskra gesta sem nýta þessa þjónustu.
Á Selfossi kynnti Deloitte greiningu fyrir Samtök ferðaþjónustunnar þar sem fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir sem snerta greinina eru metnar á 10,7 milljarða króna. Ríkisstjórnin verður að horfa á samanlögð áhrif þessara ákvarðana. Viðbótargjald verður hluti af verði ferðarinnar þótt það sé formlega lagt á gestinn. Fyrirtækin finna fyrir því þegar viðskiptin dragast saman.
Fyrirsjáanleikinn skiptir líka máli. Fyrirtæki hafa þegar selt ferðir fyrir næsta ár. Almenn yfirlýsing ráðherra um skattáform segir þeim ekki hvaða fjárhæðir eigi að setja í bindandi samninga. Enn er verið að ræða hvaða staðir verði gjaldskyldir. Ríkisstjórnin getur ekki ætlast til þess að atvinnurekendur verðleggi vörur sínar og þjónustu eftir reglum sem hún hefur sjálf ekki gengið frá.
Ég vil að innviðir ferðaþjónustunnar séu traustir og náttúran njóti verndar. Til þess þarf skýra forgangsröðun fjármuna, einfaldar lausnir og samstarf við sveitarfélög og fyrirtæki. Gjaldtaka þarf að vera hófleg og tengslin við þjónustuna skýr. Fyrst þarf að sýna hvernig megi nýta betur þær tekjur sem þegar eru innheimtar af greininni. Ríkið á að sýna aðhald í eigin rekstri og skapa skilyrði fyrir betri nýtingu fjárfestinga og lengri dvöl gesta.
Sjálfstæðisflokkurinn mun berjast gegn þessum álögum. Við ætlum að standa með fólkinu sem skapar störfin og verðmætin. Bláskógaskatturinn og skattahækkunin á baðlón verða að víkja.