Guðrún Hafsteinsdóttir

Ríkið á að fara á undan

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var kosin út á loforð sín um að ná tökum á efnahagsmálunum, verðbólgunni og vöxtunum. Það er svo að þegar upp er staðið kjósa margir, ef ekki flestir, með veskinu.

Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar átti að vera að ná stöðugleika í efnahagslífinu og lækkun vaxta með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Sagt var að ef gera þyrfti meira og hraðar yrði meira gert hraðar. Verkin tala, sagði forsætisráðherra. Nú mælist verðbólgan hins vegar 5,9%, rúmlega prósentustigi meiri en þegar ríkisstjórnin tók við. Hún hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024.

Ríkisstjórnin er sjálf þátttakandi í þessari þróun upp á við. Hækkanir skatta og gjalda koma niður á heimilunum og fyrirtækjunum í landinu og sumar þeirra hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs eins og nýjasta verðbólgumælingin sýnir m.a. glöggt. Samkvæmt Hagstofunni hækkaði vísitalan um 0,32% vegna þess eins að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti rann út í byrjun september.

Nú boðar ríkisstjórnin aukið aðhald í rekstri ríkisins. Það er vel. Heimilin og fyrirtækin í landinu hafa hins vegar mátt bíða lengi eftir því að fyrirheit um lægri verðbólgu skili sér, með tilheyrandi kostnaði. Hver mánuður sem líður með háum vöxtum og hækkandi framfærslukostnaði þrengir að fjárhag fjölskyldna og svigrúmi fyrirtækja til fjárfestinga og nýrra starfa.

Mikilvægt er að ná jafnvægi á rekstri ríkissjóðs og stöðva skuldasöfnun en það skiptir ekki minna máli hvernig því markmiði er náð. Ríkisstjórnin hefur boðað aðhald en líka umfangsmiklar skatta- og gjaldahækkanir sem koma til viðbótar við þær hækkanir sem hún hefur þegar látið dynja á heimilunum og fyrirtækjunum í landinu.

Ríkisstjórnin er ekki stikkfrí

Á meðal þess sem boðað er í fjárlagafrumvarpi næsta árs er 5,2% hækkun á krónutölugjöldunum svokölluðu. Þar undir falla meðal annars áfengis-, tóbaks- og níkótíngjöld. Kílómetragjaldið á að hækka enn frekar. Þessar hækkanir hafa áhrif á heimilin og hækka rekstrarkostnað fyrirtækja.

Ríkisstjórnin tekur þessa ákvörðun á sama tíma og kallað er eftir því að hið opinbera og fyrirtækin haldi að sér höndum þegar kemur að verðhækkunum og takmarki hækkanir við 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Nú hafa fyrirtæki tekið áskoruninni og sveitarfélögin sömuleiðis.

Árborg og Kópavogur, sem bæði eru leidd af sjálfstæðismönnum, hafa sýnt frumkvæði. Árborg hefur ákveðið að takmarka almennar gjaldskrárhækkanir við 2,5% á næsta ári og Kópavogur lýst sig reiðubúinn til að miða hækkanir gjalda á barnafjölskyldur við sama mark, að því gefnu að kjarasamningar haldi og aðrir opinberir aðilar taki þátt. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur jafnframt samþykkt ályktun Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og formanns sambandsins, um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027 og kallað eftir sambærilegri þátttöku ríkisins.

Í þessum efnum getur ríkið ekki verið stikkfrí og innheimt sífellt meira af öðrum, borið fyrir sig almennar verðlagshækkanir og nauðsyn þess að skattstofnar haldi verðgildi sínu. Hagstjórnin er í höndum ríkisstjórnarinnar, ekki einstaklinganna og fyrirtækjanna, og því er það ríkisins að ganga á undan með góðu fordæmi. Nú er þessu öfugt farið.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ætlar hins vegar ekki að láta sitt eftir liggja. Á mánudaginn, þegar Alþingi kemur saman á ný, leggjum við fram breytingatillögu við fjárlagafrumvarpið, þess efnis að krónutölugjöldin hækki ekki um meira en 2,5%. Þannig leggi ríkið það sama af mörkum og það ætlast til af öðrum. Minni tekjuaukningu þarf að mæta með aðhaldi í ríkisrekstrinum.

Ríkisstjórnarflokkarnir fá þar tækifæri til að sýna í verki að þeir vilji leggja hönd á plóg. Heimilin og fyrirtækin þurfa á lægri verðbólgu og vöxtum að halda. Aðhaldið þarf að byrja hjá ríkinu. Heimilin hafa þurft að bera byrðarnar nógu lengi.