Guðrún Hafsteinsdóttir

Krónan er ekki gallalaus en evran er heldur ekki töfralausn

Umræða um íslensku krónuna blossar jafnan upp þegar verðbólga er mikil, vextir bíta heimilin og fyrirtæki finna fyrir óvissu í rekstri. Það er skiljanlegt þar sem gjaldmiðillinn snertir daglegt líf fólks; húsnæðislánin, matarkörfuna, rekstur fyrirtækja og afkomu ríkissjóðs.

Umræða um gjaldmiðilinn verður hins vegar að vera yfirveguð og má verða pólitísk markaðssetning fyrir fyrirframákveðna niðurstöðu.

Ný skýrsla sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum er mikilvægt innlegg. Hún sýnir að íslenska krónan hefur bæði kosti og galla. Hún getur auðveldað aðlögun þegar þjóðarbúið verður fyrir áföllum, en hún getur líka magnað sveiflur, aukið verðbólguþrýsting og hækkað fjármagnskostnað. Hún minnir okkur líka á að gjaldmiðill leysir ekki vanda sem á rætur að rekja til veikrar hagstjórnar, of mikils vaxtar ríkisútgjalda og launamyndunar sem fer langt fram úr framleiðni.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu voru niðurstöður skýrslunnar orðaðar með mun meira afgerandi hætti en í skýrslunni sjálfri, en þar var fullyrt að „kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli“. Þetta er ekki að finna í samantekt skýrslunnar. Nú hefur Hilde C. Bjørnland, prófessor og einn höfunda skýrslunnar, staðfest að höfundarnir hafi ekki vegið kostnað krónunnar saman við mögulegan ábata evrunnar og að fullyrðing ráðuneytisins sé því ekki komin frá skýrsluhöfundum.

Stærsti kostur krónunnar er að með henni fylgir sjálfstæð peningastefna. Seðlabanki Íslands getur brugðist við íslenskum aðstæðum með sínum ákvörðunum, t.d. breytingu á stýrivöxtum og gjaldeyrisinngripum. Það skiptir máli fyrir lítið og opið hagkerfi sem byggist á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og orkuframleiðslu og er berskjaldað fyrir náttúruáföllum, sveiflum í eftirspurn og breytingum á alþjóðlegum mörkuðum.

Krónan getur og hefur hjálpað þjóðarbúinu að laga sig að breyttum aðstæðum. En krónan er þó ekki gallalaus. Íslendingar þekkja vel hvað gerist þegar krónan veikist en þá hækkar innfluttur varningur í verði; matur, eldsneyti, byggingarefni, bílar, tæki og rekstrarvörur.

Þá er ótalinn viðskiptakostnaðurinn sem felst í utanríkisviðskiptum í ólíkum myntum vegna ófyrirsjáanlegra gengishreyfinga. Stór fyrirtæki geta varið sig betur, en minni fyrirtæki hafa síður burði til þess. Hér á Íslandi, þar sem verðmætasköpunin er ekki síst byggð á litlum og meðalstórum fyrirtækjum, getur þetta skipt máli.

Heiðarleiki í umræðunni

Evran myndi vissulega draga úr gengisáhættu gagnvart evrusvæðinu. Hún gæti lækkað hluta fjármagnskostnaðar og auðveldað viðskipti. En evran leysir ekki íslenska verðbólguvandann. Upptaka evru stöðvar ekki sjálfkrafa útgjaldaþenslu ríkisins og tryggir ekki hóflega launaþróun. Hún fær ekki hallærisplan ríkisstjórnarinnar til þess að ganga upp.

Ef Ísland tæki upp evru myndum við ekki lengur hafa sjálfstæða peningastefnu. Við myndum lúta peningastefnu Seðlabanka Evrópu, sem tekur mið af stöðu evrusvæðisins í heild, ekki sérstaklega íslenskum aðstæðum. Ef íslenska hagkerfið væri í þenslu þegar evrusvæðið væri í slaka, eða öfugt, gætum við þurft að beygja okkur undir peningastefnu sem hentaði okkur illa.

Þá yrðu hinir tveir armar hagstjórnarinnar, vinnumarkaðurinn og ríkisfjármálin, að bera miklu meiri ábyrgð en þau gera nú þegar. Með evru þyrftum við því ekki minni aga, heldur meiri aga.

Þetta er einmitt það sem ríkisstjórnin vill ekki ræða. Hún vill tala um gjaldmiðilinn eins og farartæki til þess að komast nær inngöngu í ESB, og innan ESB yrði Ísland hluti af sameiginlegu myntkerfi með öllum þeim skuldbindingum, takmörkunum og pólitísku afleiðingum sem því fylgja.

Þjóðin á rétt á skýrri og heiðarlegri umræðu um það og ekki villandi framsetningu um að hægt sé að leysa verðbólgu, lækka vexti og minnka óstöðugleika með því einu að skipta um gjaldmiðil.

Ábyrgðin heima fyrir

Staðan á Íslandi í dag kallar á ábyrgð. Verðbólga er enn of mikil. Vextir eru enn háir. Fyrirtæki halda að sér höndum. Heimilin finna fyrir stöðunni í hverjum mánuði. Vinnumarkaðurinn sýnir merki um kólnun. Það vantar ekki nýtt nafn á vandann. Það vantar ríkisstjórn sem ræður við hann.

Raunverulega spurningin er ekki hvort krónan sé fullkomin. Hún er það ekki. Spurningin er ekki heldur hvort evran hafi enga kosti. Hún hefur kosti. Spurningin er hvort við ætlum að horfast í augu við það sem veldur verðbólgu, háum vöxtum og óstöðugleika, eða reyna að fela þann vanda á bak við nýjan gjaldmiðil.

Krónan er ekki gallalaus. Evran er ekki töfralausn.

Áður en ríkisstjórnin reynir að teyma okkur inn í ESB og taka upp evru þarf að svara grundvallarspurningunni: Höfum við lagað hagstjórnina heima fyrir? Höfum við náð tökum á ríkisútgjöldum? Höfum við skapað skilyrði fyrir lægri verðbólgu, lægri vöxtum og meiri stöðugleika?

Ef ekki, þá er svarið augljóst. Ábyrgðin, og lausnin, liggur heima fyrir. Stjórnvöld sem vilja láta taka sig alvarlega ættu fyrst og fremst að beina athygli sinni þangað.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.