Hvað felst í aðild?
Þjóðin á rétt á að vita hvað felst nákvæmlega í vegferð ríkisstjórnarinnar inn í ESB. Hvaða upplýsingar liggja til grundvallar, hvaða væntingar skal hafa til lengdar viðræðna og hvaða skilyrði forsætisráðherra hefur sett fyrir inngöngu. Það er ekki hægt að hefja þessa vegferð á frösum um að „segja já við tækifærum“ eða „að kíkja í pakkann“ án þess að gera minnstu tilraun til þess að gefa upp hver samningsmarkmið Íslands eru í viðræðunum.
Sjálfsögð krafa um upplýsta umræðu getur ekki talist vera upplýsingaóreiða.
Í umræðunni hefur stundum verið talað eins og Ísland geti einfaldlega gengið til viðræðna, lagt fram óskir sínar og síðan valið hvaða grunnreglur sambandsins við viljum taka upp og hvaða reglum við viljum hafna.
En opinber gögn Evrópusambandsins segja aðra sögu.
Til dæmis liggur fyrir álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 24. febrúar 2010 um umsókn Íslands. Þá liggur einnig fyrir samningsrammi Evrópusambandsins fyrir aðildarviðræður við Ísland, sem ráðherraráð ESB samþykkti 26. júlí 2010.
Þar kemur skýrt fram að aðildarviðræður snúast ekki um að semja upp á nýtt um grunnskipulag Evrópusambandsins. Umsóknarríki þarf að taka upp regluverk sambandsins eins og það stendur við aðild. Það nær ekki aðeins til reglugerða og tilskipana, heldur einnig til sáttmála sambandsins, stofnanaramma þess og dómaframkvæmdar dómstóls ESB.
Þvert á fullyrðingar ríkisstjórnarinnar er aðild að Evrópusambandinu ekki sérsniðinn samningur þar sem hvert ríki velur sér þá hluta sem henta og hafnar hinum. Aðild felur í sér þátttöku í sameiginlegu regluverki og að stofnanir sambandsins fara með valdheimildir á þeim sviðum þar sem ríkin hafa framselt vald. Aðild felur í sér að dómstóll ESB hefur úrslitaþýðingu við túlkun réttarins.
Staðreyndir um undanþágur
Í samningsramma ESB kemur fram að aðild megi ekki fela í sér breytingar á reglum eða stefnumörkun sambandsins. Það þýðir að umsóknarríki geta í ákveðnum tilvikum fengið tímabundna aðlögun, fresti eða sérstaka útfærslu á framkvæmd reglnanna, en það er allt annað en varanleg undanþága frá grundvallarreglum sambandsins.
Þetta á sérstaklega við um sjávarútveginn. Sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusambandsins er hluti af regluverki ESB. Samkvæmt stefnunni fer ESB með einkarétt á verndun lífrænna auðlinda hafsins. Aðildarríki sinna daglegri stjórnsýslu og eftirliti, en grundvallarreglurnar eru settar innan sambandsins.
Þegar litið er til þess hvernig önnur ríki innan sambandsins horfðu á hagsmuni Íslands á meðan aðildarviðræðurnar stóðu yfir á sínum tíma verður myndin enn skýrari. Spánn, sem hafði augljósa hagsmuni af þróun málsins, lét skýrt í ljós á vettvangi sameiginlegrar Evrópunefndar spænska þingsins að þau vildu ekki að Ísland fengi undanþágur á svig við sameiginlegar reglur eða héldu erlendum fjárfestum frá íslenskum sjávarútvegi. Þáverandi utanríkisráðherra Spánar, Miguel Ángel Moratinos, sagði að með aðild Íslands gæfust tækifæri til aukinna fjárfestinga fyrirtækja innan ESB og frekari aðgangs að miðunum samkvæmt reglum innri markaðarins. Síðar kom þáverandi Evrópumálaráðherra Spánar, Íñigo Méndez de Vigo, og sagði að sjávarútvegsmálin væru eitt helsta álitamálið í viðræðum við Ísland og að spænsk stjórnvöld vildu ekki að Ísland fengi undanþágur frá stofnanaramma ESB á sviði fiskveiða.
Þessi afstaða var ekki bundin við Spán. Ríki með mikla hagsmuni í sjávarútvegi eins og Danmörk, Holland, Frakkland, Portúgal og Þýskaland hafa einnig lagt áherslu á sameiginlegar leikreglur innan fiskveiðistefnunnar og jafnræði aðildarríkja gagnvart auðlindunum. Þessi ríki hafa almennt verið vinsamleg gagnvart inngöngu Íslands í Evrópusambandið en ekki á þeim grundvelli að Ísland héldi áfram sjálfstæðu og varanlegu forræði utan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar.
Sérstaða Íslands
Það er því ljóst að sú staða sem Ísland hefur í dag, þar sem við stöndum utan sameiginlegu fiskveiðistefnunnar, utan landbúnaðarstefnunnar og utan tollabandalagsins, flyst ekki sjálfkrafa yfir í aðild að ESB. Þetta þarf ríkisstjórnin að viðurkenna.
Hún má vera fylgjandi aðild og hún má telja að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins. En hún má ekki tala eins og reglurnar séu óljósar þegar þær liggja fyrir í opinberum gögnum. Hún má ekki láta eins og varanlegar undanþágur séu sjálfsagður kostur í stöðunni þegar samningsramminn segir annað og þegar saga viðræðnanna sjálfra sýnir að önnur ríki innan sambandsins höfðu enga sérstaka löngun til að veita Íslandi slíka sérstöðu.
Þjóðin á rétt á að vita hvað felst í aðild. Hún á rétt á að vita hvað hægt er að semja um, en einnig hvað er ekki hægt að semja um. Vilji ríkisstjórnin fara í þessa vegferð verður hún fyrst að hafa kjark til að segja sannleikann um hvað felst í aðild að ESB. Allt annað er blekkingarleikur gagnvart þjóðinni.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.