Guðrún Hafsteinsdóttir

Takk fyrir traustið

Niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna er skýr. Sjálfstæðisflokkurinn er sterkasta stjórnmálaaflið á sveitarstjórnarstiginu.

Árangurinn er fyrst og fremst kominn til vegna mikillar vinnu undanfarna mánuði, öflugrar grasrótar, sterkra framboða um land allt og skýrs málflutnings sem byggist á ábyrgð, frelsi og að hafa trú á fólkinu í landinu.

Sjálfstæðisflokkurinn bauð fram í 34 sveitarfélögum í öllum landshlutum. Alls stigu 596 frambjóðendur fram undir merkjum flokksins. Það eitt og sér segir mikla sögu. Það sýnir breiddina, kraftinn og rótgróna stöðu Sjálfstæðisflokksins í íslensku samfélagi.

En kjósendur sögðu líka sína sögu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 128 kjörna fulltrúa um allt land og jók verulega áhrif sín í byggðum landsins. Af þeim 34 sveitarfélögum þar sem flokkurinn bauð fram fékk Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í 11 sveitarfélögum. Í Kópavogi fékk Sjálfstæðisflokkurinn sína bestu kosningu í tuttugu ár og náðist sögulegur árangur með hreinum meirihluta í fyrsta sinn. Við erum aftur stærsti flokkurinn í Reykjanesbæ, í Vestmannaeyjum og Mosfellsbæ. Í Reykjavík varð einn glæsilegasti sigur flokksins í borginni um árabil. Víða um land var niðurstaðan sú sama og kjósendur völdu að halda áfram þar sem vel hefur tekist, en breyta þar sem þurfti að breyta.

Þessi árangur verður enn skýrari þegar hann er settur í samhengi. Atkvæðafjöldi Sjálfstæðisflokksins var meiri en atkvæði allra ríkisstjórnarflokkanna samanlagt, eða 20.843 atkvæðum meiri. Til samanburðar fékk Miðflokkurinn 19.151 atkvæði í heildina. Sú staðreynd sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn er sú stjórnmálahreyfing sem nýtur víðtækasta traustsins í sveitarfélögum landsins.

Ég er afar þakklát öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum. Frambjóðendum sem stigu fram og gáfu kost á sér, sjálfboðaliðunum sem gáfu allan sinn tíma sinn og kraft, fjölskyldum sem stóðu vaktina og síðast en ekki síst kjósendum sem sýndu okkur traust.

Niðurstaðan um liðna helgi er upphafið á nýju verkefni. Nú tekur við sú mikilvæga vinna sem við lofuðum að sinna af heilindum og við ætlum að standa undir traustinu. Við ætlum að bretta upp ermar, mæta verkefnunum af festu og sýna í verki að Sjálfstæðisflokkurinn er reiðubúinn að leiða. Í sveitarstjórnum landsins liggja fyrir stór verkefni. Góð þjónusta við íbúana, ábyrgur rekstur, öflug uppbygging og traust atvinnulíf. Við viljum að nærsamfélögin finni fyrir í sínu daglega lífi hverjir halda um stjórnartaumana.

Þar eigum við að láta verkin tala. Það er þannig sem traust er endurgoldið og góður árangur verður að varanlegum árangri. Næstu fjögur ár geta orðið gjöful fyrir sveitarfélögin og fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Við mætum þeirri ábyrgð auðmjúk, bjartsýn og ákveðin í að gera betur.

Við ætlum áfram að vinna sameinuð fyrir fólkið í landinu. Takk fyrir traustið.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu. Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.